Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Íslenskur hlutabréfasjóður

Um Íslenskan hlutabréfasjóð

Íslenskur hlutabréfasjóður er vísitölusjóður. Hann endurspeglar samsetningu og ávöxtun OMXI6 vísitölunnar með því að fjárfesta í þeim hlutabréfum sem mynda vísitöluna á hverjum tíma.

Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.

 

Fjárfestingarstefna

Íslenskur hlutabréfasjóður fjárfestir í félögum sem mynda OMXI6 vísitöluna í réttu hlutfalli við vægi þeirra í vísitölunni.

 

Fyrir hverja?

Fjárfesting í Íslenskum hlutabréfasjóði hentar jafnt einstaklingum og fagfjárfestum sem vilja ná fram góðri dreifingu í hlutafjáreign sína og eru reiðubúnir að taka töluverða áhættu við ávöxtun fjármuna.

Gengisþróunargögn á Excel formi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf