Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Stýrður hlutabréfasjóður

Um Stýrðan hlutabréfasjóð

Stýrður hlutabréfasjóður fjárfestir fyrst og fremst í félögum sem eru í úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands, OMXI6. Vísitalan er samsett af félögum sem skráð eru á Aðallista.

Sjóðurinn endurspeglar vísitöluna ekki og hefur heimildir til að fjárfesta í öðrum hlutföllum eða öðrum félögum en vísitalan er samsett úr enda er sjóðurinn ekki vísitölusjóður í skilningi 36. gr. laga nr. 30/2003.

Eignum sjóðsdeildarinnar er stýrt með langtímaarðsemi að markmiði.

Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.

 

Fjárfestingarstefna

Stýrður hlutabréfasjóður er sjóður sem ávaxtar fé með kaupum á eftirfarandi flokkum verðbréfa:

  • Hlutabréf skráð í Kauphöll íslands (90-100%)
  • Afleiður (0-20%)
  • Óskráð verðbréf (0-10%)
  • Innlán (0-10%)

 

Fyrir hverja?

Fjárfesting í Stýrðum hlutabréfasjóði hentar jafnt einstaklingum og fagfjárfestum sem vilja ná fram góðri dreifingu í hlutafjáreign sína og eru reiðubúnir að taka töluverða áhættu við ávöxtun fjármuna.

Gengisþróunargögn á Excel formi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf