Íslensk verðbréf hf.

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar, verðbréfamiðlunar, útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og almennrar ráðgjafar við val á sparnaðarleiðum.

Skammtímasjóður ÍV

Um Skammtímasjóð ÍV

Skammtímasjóður ÍV er fjárfestingarsjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. 

Sjóðurinn er traustur kostur fyrir þá sem vilja nýta þá vexti sem bjóðast á innlánum auk þess að eiga kost á umframávöxtun sem ríkistryggð bréf gætu gefið. 

Enginn binditími er á fjárfestingu í sjóðnum.

 

Fjárfestingarstefna

  • Ríkistryggð innlán 50-100%
  • Ríkistryggð verðbréf 0 - 50%         

Allt að 10% af ofangreindum eignum mega vera óskráð.

Fjárfest er í stuttum ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru ríkisbréf, ríkisvíxlar og íbúðarbréf. 

 

Fyrir hverja?

Skammtímasjóður ÍV hentar hvort sem er fyrir skemmri eða lengri tíma fjárfestingu.  Þó er mælst til þess að ekki sé fjárfest fyrir styttra tímabil en 2 vikur í senn, enda getur sjóðurinn lækkað á milli daga.

Gengisþróunargögn á Excel formi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf