Um Áskriftarsjóð ríkisverðbréfa
Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Sjóðurinn er traustur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni til meðallangs eða langs tíma.
Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 5-7 ár og getur gengi sjóðsins sveiflast nokkuð við breytingar á ávöxtunarkröfu á markaði.
Sjóðurinn var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.
Fjárfestingarstefna
Fjárfest er í ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði. Í þessum flokki eru húsbréf, húsnæðisbréf, spariskírteini, ríkisbréf og ríkisvíxlar.
Fyrir hverja?
Þar sem gengi sjóðsins sveiflast í takt við breytingar á ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði er sjóðurinn einkum ætlaður fjárfestum sem hyggja á fjárfestingu til millilangs eða langs tíma.
Einnig hentar sjóðsdeildin fjárfestum sem vilja lágmarka skuldaraáhættu, þar sem eignir hennar eru ríkistryggðar.
Við áskrift er veittur 50% afsláttur af söluþóknun.




