Jólagjöf til hjálparsamtaka

Eins og undanfarin ár þá hafa Íslensk verðbréf dregið úr jólakortasendingum til viðskiptavina og þess í stað styrkt hjálparsamtök á Akureyri um hálfa milljón króna.

Þessi fjárhæð ásamt fjölmörgum öðrum styrkjum og gjöfum verður nýtt til aðstoðar einstaklingum og fjölskyldum fyrir jólin. Að hjálparsamtökunum standa Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn.