ÍV Erlent hlutabréfasafn

Síðast uppfært: 23.04.2024

Fyrir hvern er sjóðurinn?

Fjárfesting í ÍV Erlendu hlutabréfasafni er góður kostur fyrir þá sem vilja nýta sér kosti sjóðaformsins til að fjárfesta í erlendum hlutabréfum. Sjóðurinn fjárfestir að miklu leyti í stórum og vel þekktum fyrirtækjum sem eru mörg hver leiðandi á sínu sviði. Sjóðnum er stýrt með virkum hætti af sérfræðingum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni. Ávöxtun sjóðsins getur sveiflast verulega og því hentar sjóðurinn þeim sem vilja fjárfesta til lengri tíma.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel eignasamsetningu sjóðsins og öll þau gögn sem gilda um viðskipti með hlutdeildarskírteini hans, s.s lykilupplysingar og  útboðslýsingu. 

Markmið og fjárfestingarstefna

ÍV Erlent hlutabréfasafn er verðbréfasjóður sem fjárfestir að meginstefnu í hlutabréfum sem skráð eru í kauphöllum þróaðra markaða. Markmið hans er að ávaxta eignir sjóðsins með því að byggja upp og viðhalda vel dreifðu safni erlendra hlutabréfa.

Þar sem sjóðurinn er gerður upp í íslenskum krónum þá hefur breyting á gengi krónunnar áhrif á sjóðinn. Styrkist krónan minnkar ávöxtun sem því nemur og eykst ef krónan veikist.

Verðbreyting (upphafsgildi = 100)

Eignasamsetning

Stærstu eignir

Fjárfestingarstefna Stefna Eign
Hlutabréf skráð í kauphöllum þróaðra markaða 50-100% 75%
Hlutabréf skráð í kauphöllum BRIK-landa 0-50% 21%
Reiðufé   4%

Stærstu útgefendur

Verðbreyting tímabila Frá áramótum 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Erlent hlutabréfasafn 7,6% 5,3% 17,8% 32,3%
Verðbreyting ára 2023 2022 2021 2020 2019
ÍV Erlent hlutabréfasafn 32,1% -26,9% 13,6% 50,7% 35,8%

Grunnupplýsingar

Stærð (m.kr.) 3.300,3
Sjóðstjóri Halldór Andersen
Stofnár 2006
Umsýsluþóknun á ári 1.5%
Árangursþóknun Á ekki við
Árangursviðmið Á ekki við
Rekstraraðili ÍV sjóðir hf
Vörsluaðili Íslensk verðbréf hf

Viðskipti

Lágmarkskaup 5.000
Þóknun við kaup 1%
Þóknun við sölu 0%
Afgreiðslutími 10:00 til 14:00
Uppgjörstími 3 viðskiptadagar (T+3)
Áskriftarmöguleikar

Tölfræðilegar upplýsingar

Gengi sjóðs 23.04.2024 662.7871

Hvernig fjárfesti ég í sjóðnum?

Íslensk verðbréf er helsti söluaðili verðbréfa- og sérhæfðra sjóða fyrir almenning sem reknir eru af ÍV sjóðum hf. ÍV sjóðir hf. er dótturfélag Íslenskra verðbréfa.  

Fjárfesting í sjóðunum fer fram í gegnum Verðbréfavef ÍV eða með því að hafa samband á iv@iv.is. Hægt er að spara reglulega með því að gerast áskrifandi að sjóðnum í gegnum Verðbréfavef ÍV.

Hlutdeildarskírteini sjóðsins eru rafræn.

1: Verðbréfavefur ÍV 

2: iv@iv.is

3: 460-4700

Skattlagning

Hagnaður af innlausn eignarhlutdeildar verðbréfasjóðsins er skattskyldur á Íslandi. Skattskyldur hagnaðar ákvarðast samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 90/2003 og myndar eignarhlutdeild í sjóðnum stofn til greiðslu eignarskatts. Vörslufyrirtæki sjóðsins, Íslensk verðbréf hf., sér um að standa skil á fjármagnstek juskatti samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, en hann leggst á þegar eignarhlutdeild í sjóðnum er seld með hagnaði eða þegar tekjur eru greiddar af eignar hlutdeild. Söluhagnaður ber 22% fjármagnstekjuskatt. 

Fyrirvari

ÍV Erlent hlutabréfasafn er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði. ÍV sjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. 

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar, útboðslýsingar og reglur sjóðsins auk annarra þeirra upplýsinga sem fram koma á tilteknum vefsvæði hans. Sérstaklega er bent á umfjöllun um áhættuþætti sem fram koma í útboðslýsingum. Eftir atvikum er fjárfestum ráðlagt að afla sér ráðgjafar óháðs aðila.  

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.