Um Íslensk verðbréf

Íslensk verðbréf er sjálfstætt eignastýringafyrirtæki sem þjónað hefur einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum frá árinu 1987.  Félagið er eitt elsta starfandi fjármálafyrirtæki landsins og hefur frá stofnun verið með höfðuðstöðvar á Akureyri.

Íslensk verðbréf eru óháð verðbréfafyrirtæki og stundar ekki eigin viðskipti eða útlánastarfsemi. Félagið er því ekki virkur þátttakandi á mörkuðum með eigin fjármuni.

Íslensk verðbréf eru að Hvannavöllum 14, Akureyri.  

Mannauður

Íslensk verðbréf hafa yfir að ráða fjölbreyttum hóp sérfræðinga með góða starfsreynslu á fjármálamarkaði auk víðtækrar menntunar. Áhersla er lögð á gott starfsumhverfi og stuðla þannig að ánægju starfsmanna félagsins og um leið viðskiptavina þess. 

Hér er að finna nánari upplýsingar um starfsfólk Íslenskra verðbréfa

Eignarhald

Hluthafar Íslenskra verðbréfa hf. eru 16 talsins og eru 7 hluthafar sem eiga umfram 1% hlut. Þeir eru:

Björg Capital ehf. 1.) 67,59%
Kaldbakur ehf. 2.) 4,99%
Kjálkanes ehf. 3.) 4,99%
KEA svf. 4,99%
Lífeyrissjóður starfsm Akureyrb 4,99%
Stapi lífeyrissjóður 4,99%
Festa - lífeyrissjóður 3,75%


1) raunverulegur eigandi Þorbjörg Stefánsdóttir 2) raunverulegur eigandi Þorsteinn Már Baldvinsson 3) raunverulegur eigandi Ingi Jóhann Guðmundsson. 

Stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum 28. mars 2023 stjórnháttaryfirlýsingu sem hægt er að finna hér.

Samþykktir félagsins er hægt að finna hér.