Sparnaður

Fáðu meira úr sparnaðinum - fjárfestu í sjóðum

Sjóðir Íslenskra verðbréfa hafa skilað góðri ávöxtun og geta viðskiptavinir treyst því að farið sé með fjármuni þeirra af virðingu

image

Viðskiptavinir VÍS greiða ekki kaup-og söluþóknun af sjóðaviðskiptum að auki er afgreiðslugjald afnumið

Ávöxtun

Fjárfesting í sjóðum skilar umframárangri

Fjárfestingar í verðbréfum hafa almennt skilað hærri ávöxtun en hefðbundnir innlánsreikningar til lengri tíma. Sjóðastýring býður upp á þægilega leið til að taka þátt í verðbréfamarkaði og jafnframt dreifa áhættu með því að fjárfesta í fjölbreyttum eignum.

Hér fyrir neðan má sjá samanburð á ávöxtun sjóða Íslenskra verðbréfa og hefðbundinna innlánsreikninga ef fjárfest hefði verið fyrir eina milljón kr. fyrir 10 árum síðan.

10 ára ávöxtun*
1M kr.
Upphafstaða
1.4M kr.
Innlánsreikningur**
1.6M kr.
ÍV Skuldabréfasafn
1.7M kr.
ÍV Eignasafn III
2.5M kr.
ÍV Íslensk Hlutabréf - Aðallisti

*10 ára uppsöfnuð ávöxtun frá 30.4.2015 – 30.4.2025

*Ávöxtun fortíðar er ekki ávísun á framtíðarávöxtun

**Innlánsreikningar eru almennir sparnaðarreikningar samkvæmt www.sedlabanki.is til 31.3.2019 en frá þeim tímapunkti til 30.4.2025 er um að ræða innlánsvextir hjá Auði, Kviku banka.

Sjóðir

Auðvelt að byrja

Einfalt er að stofna til viðskipta í gegnum verðbréfavef Íslenskra verðbréfa í örfáum skrefum

Stofna til verðbréfaviðskipta

Velja sjóð

Ganga frá kaupum

Eignin birtist í vörslusafninu þínu

Þjónusta

Sparnaður í áskrift

Sparnaður í áskrift er einföld og hentug leið til að byggja upp framtíðarsjóð – hvort sem er fyrir börnin, útborgun í íbúð eða önnur markmið. Það er ekkert lágmark á þá fjárhæð sem lögð er inn, og því fyrr sem byrjað er að spara reglulega, því meiri verður uppsöfnuð ávöxtun yfir tíma.  Hægt er að stofna vörslusafn fyrir börn á einfaldan hátt á verðbréfavef Íslenskra verðbréfa.  Með því að gera sparnað að reglulegum hluta af útgjöldum verður auðveldara að ná markmiðum til lengri tíma. 

Reynsla

Treystu okkur fyrir fjármálunum

Traust, reynsla og langtímaárangur fyrir viðskiptavini félagsins. Íslensk verðbréf hafa á að skipa reynslumiklum sjóðstjórum sem hafa starfað á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum í áratugi. 

Vinsælustu sjóðirnir

Sjá alla sjóði

Þjónusta

Allt sem þú þarft að vita

Þú getur alltaf haft samband við okkur og við munum aðstoða þig, hvort sem er að fara yfir hvaða sjóðir henta þér eða byggja upp reglulegan sparnað. Sendu okkur linu á iv@iv.is eða heyrðu í okkur í síma 460 4700

Hafa samband

Sjóðir

Hvað er sjóður?

Sjóðir taka við fjármunum frá mörgum fjárfestum. Hver fjárfestir getur lagt mismikið til og eignast hlutdeild í sjóðnum sem samsvarar fjárframlagi hans. Þegar þú kaupir hlut í sjóði, nýturðu góðs af ávöxtun sjóðsins, í hlutfalli við þína eign í sjóðnum.

Lesa nánar

Sjóðir

Hvaða sjóður hentar mér?

Ef þú ert að spara til lengri tíma getur verið gott að skoða skuldabréfasjóði, hlutabréfasjóði eða blandaða sjóði.

Lesa nánar

Áskrift

Sparnaður í áskrift

Sparnaður í áskrift er einföld og hentug leið til að byggja upp framtíðarsjóð – hvort sem er fyrirbörnin, útborgun í íbúð eða önnur markmið. 

Lesa nánar