FME staðfestir breytingar á reglum Eignastýringarsafns ÍV – I og Eignastýringarsafns ÍV – II

FME hefur staðfest breytingar á reglum Eignastýringarsafns ÍV – I og Eignastýringarsafns ÍV – II.  Breytingarnar fela í sér nánari skilgreiningar á fjárfestingarheimildum sjóðanna að teknu tilliti til eignasafna verðbréfa- og fjárfestingarsjóða sem fjárfest hefur verið í. Ekki er um efnislega breytingu að ræða á fjárfestingarstefnunum heldur eru fjárfestingarheimildir sjóðanna skilgreindar með nákvæmari hætti.  Uppfærðar reglur, útboðslýsingar og lykilupplýsingablöð eru aðgengileg á heimasíðum Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV og Íslenskra verðbréfa.