ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa

Síðast uppfært: 07.10.2024

Fyrir hvern er sjóðurinn?

ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er traustur kostur fyrir þá sem vilja spara til meðallangs eða lengri tíma þar sem gengi sjóðsins getur sveiflast töluvert. Sjóðurinn hentar bæði almennum fjárfestum sem og fagfjárfestum.

Markmið og fjárfestingarstefna

Einungis er fjárfest í markaðsverðbréfum með ríkisábyrgð og er meðallíftími eignasafns sjóðsins á bilinu 5-7 ár. Stýring sjóðsins tekur að töluverðu leyti mið af verðbólguhorfum og því getur verðtryggingarhlutfall hans verið breytilegt frá mánuði til mánaðar.

Verðbreyting (upphafsgildi = 100)

Eignasamsetning

Stærstu eignir

Fjárfestingarstefna Stefna Eign
Ríkisvíxlar 0-40% 0%
Ríkisbréf 0-70% 53%
Spariskírteini 0-50% 0%
Íbúðabréf, húsbréf og húsnæðisbréf 0-90% 49% 0-90% 40%
Reiðufé   7%

Stærstu útgefendur

Verðbreyting tímabila Frá áramótum 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa 4,7% 2,0% 2,9% 8,2%
Verðbreyting ára 2023 2022 2021 2020 2019
ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa 3,8% -6,2% 1,5% 5,3% 8,6%

Grunnupplýsingar

Stærð (m.kr.) 2.697,8
Sjóðstjóri Halldór Andersen og Þorsteinn Ágúst Jónsson
Stofnár 2001
Umsýsluþóknun á ári 1%
Árangursþóknun Á ekki við
Árangursviðmið Á ekki við
Rekstraraðili ÍV sjóðir hf
Vörsluaðili Íslensk verðbréf hf

Viðskipti

Lágmarkskaup 5.000
Þóknun við kaup 0,5%
Þóknun við sölu 0%
Afgreiðslutími 10:00 til 14:00
Uppgjörstími 2 viðskiptadagar (T+2)
Áskriftarmöguleikar

Tölfræðilegar upplýsingar

Gengi sjóðs 07.10.2024 479.8526
Meðallíftími (ár) 5,49
Verðtr.hlutfall 64,17%

Hvernig fjárfesti ég í sjóðnum?

Íslensk verðbréf er helsti söluaðili verðbréfa- og sérhæfðra sjóða fyrir almenning sem reknir eru af ÍV sjóðum hf. ÍV sjóðir hf. er dótturfélag Íslenskra verðbréfa.  

Fjárfesting í sjóðunum fer fram í gegnum Verðbréfavef ÍV eða með því að hafa samband á iv@iv.is. Hægt er að spara reglulega með því að gerast áskrifandi að sjóðnum í gegnum Verðbréfavef ÍV 

1: Verðbréfavefur ÍV 

2: iv@iv.is

3: 460-4700

Skattlagning

Hagnaður af innlausn eignarhlutdeildar sjóðsins er skattskyldur á Íslandi. Skattskyldur hagnaðar ákvarðast samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 90/2003 og myndar eignarhlutdeild í sjóðnum stofn til greiðslu eignarskatts. Vörslufyrirtæki sjóðsins, Íslensk verðbréf hf., sér um að standa skil á fjármagnstekjuskatti samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, en hann leggst á þegar eignarhlutdeild í sjóðnum er seld með hagnaði eða þegar tekjur eru greiddar af eignarhlutdeild. Söluhagnaður ber 22% fjármagnstekjuskatt. 

Fyrirvari

ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði. ÍV sjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. 

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar, útboðslýsingar og reglur sjóðsins auk annarra þeirra upplýsinga sem fram koma á tilteknum vefsvæði hans. Sérstaklega er bent á umfjöllun um áhættuþætti sem fram koma í útboðslýsingum. Eftir atvikum er fjárfestum ráðlagt að afla sér ráðgjafar óháðs aðila.  

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.