Síðast uppfært: 05.12.2019
Fyrir hvern er sjóðurinn?
ÍV Sparisafn er traustur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni með fjárfestingu í ríkistryggðum skuldabréfum og öðrum skráðum skuldabréfum í eitt ár eða lengur. Sjóðurinn hentar bæði einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum.
Markmið og fjárfestingarstefna
Fjárfest er í skuldabréfum og víxlum, útgefnum af eða með ábyrgð íslenska ríkisins, öðrum skráðum skuldabréfum og innlánum fjármálastofnana. Líftími eignasafns sjóðsins er á bilinu 1-5 ár. Stýring sjóðsins tekur að nokkru leyti mið af verðbólguhorfum og því getur verðtryggingarhlutfall hans verið breytilegt frá mánuði til mánaðar. Einnig er horft til þróunar á ávöxtunarkröfu á markaði.
Verðbreyting (upphafsgildi = 100)
Stærstu eignir
Eign |
Auðkenni |
Eignaflokkur |
Vægi |
{name} |
{ticker} |
{section} |
{weight} |
Fjárfestingarstefna | Stefna | Eign |
Ríkisvíxlar |
0-50% |
0% |
Ríkisbréf |
30-90% |
61% |
Íbúðabréf, spariskírteini, húsbréf og húsnæðisbréf |
0-90% |
0% |
Önnur skráð skuldabréf |
0-40% |
39% |
Innlán |
0-20% |
0% |
Reiðufé |
|
0% |
Verðbreyting tímabila |
Frá áramótum |
3 mán |
6 mán |
12 mán |
ÍV Sparisafn |
7,4% |
0,9% |
2,0% |
8,5% |
Verðbreyting ára |
2018 |
2017 |
2016 |
2015 |
2014 |
ÍV Sparisafn |
3,8% |
5,2% |
5,8% |
4,3% |
7,2% |
Grunnupplýsingar
Stærð (m.kr.) |
716 |
Sjóðstjóri |
Hreinn Þór Hauksson |
Stofnár |
2011 |
Umsýsluþóknun á ári |
0.8% |
Rekstraraðili |
ÍV sjóðir hf |
Vörsluaðili |
Íslensk verðbréf hf |
Viðskipti
Lágmarkskaup |
5.000 |
Þóknun við kaup |
0,5% |
Þóknun við sölu |
0% |
Afgreiðslutími |
10:00 til 14:00 |
Uppgjörstími |
2 viðskiptadagar (T+2) |
Áskriftarmöguleikar |
Já |
Tölfræðilegar upplýsingar
Gengi sjóðs 05.12.2019 |
15.6903 |
Meðallíftími (ár) |
4,97 |
Verðtr.hlutfall |
50,58% |
Flökt 1 ár |
1,10% |
Hvernig fjárfesti ég í sjóðnum?
Hægt er að fjárfesta í ÍV Sparisafni með því að hafa samband við ráðgjafa Íslenskra verðbréfa í síma 460 4700. Einnig má fjárfesta í sjóðnum á heimasíðu Íslenskra verðbréfa www.iv.is. Gerast má áskrifandi að sjóðnum með því að hafa samband við Íslensk verðbréf, þá er annaðhvort skuldfært af kreditkorti eða millifært af bankareikningi mánaðarlega umsamin upphæð og því bætt við eign viðskiptavinar í ÍV Sparisafni.
Skattlagning
Hagnaður af innlausn eignarhlutdeildar verðbréfasjóðsins er skattskyldur á Íslandi. Skattskyldur hagnaðar ákvarðast samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 90/2003 og myndar eignarhlutdeild í sjóðnum stofn til greiðslu eignarskatts. Vörslufyrirtæki sjóðsins, Íslensk verðbréf hf., sér um að standa s kil á fjármagnstekjuskatti samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, en hann leggst á þegar eignarhlutdeild í sjóðnum er seld með hagnaði eða þegar tekjur eru greiddar af eignarhlutdeild. Söluhagnaður ber 22% fjármagnstekjuskatt.
Fyrirvari
ÍV Sparisafn er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. ÍV sjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Íslenskra verðbréfa, www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.