ÍV Sjóðir

Íslensk verðbréf er helsti söluaðili verðbréfa- og fjárfestingarsjóða sem reknir eru af ÍV sjóðum hf. ÍV sjóðir hf. er dótturfélag Íslenskra verðbréfa.  Hægt er að fjárfesta í sjóðunum í gegnum Verðbréfavef ÍV eða með því að hafa samband á iv@iv.is.

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar, útboðslýsingar og reglur hvers og eins sjóðs auk þeirra upplýsinga sem fram koma á tilteknum vefsvæðum sjóðanna. Sérstaklega er bent á umfjöllun um áhættuþætti sem fram koma í útboðslýsingum. Eftir atvikum er fjárfestum ráðlagt að afla sér ráðgjafar óháðs aðila.  

Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.

Gengi og verðbreyting

Lausafjársjóðir

Heiti sjóðs Dagsetning Kaup Sala 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Skammtímasjóður mán 21.okt 2024 22,475 22,475 2,19% 4,42% 9,14%

Eignastýringarsjóðir

Heiti sjóðs Dagsetning Kaup Sala 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Eignasafn I - Innlend og erlend skuldabréf mán 21.okt 2024 18,407 18,500 1,73% 3,06% 7,64%
ÍV Eignasafn II - Eignadreifing / Hlutabréf hámark 35% mán 21.okt 2024 10,710 10,764 2,90% 4,69% 13,26%
ÍV Eignasafn III - Eignadreifing / Hlutabréf hámark 55% mán 21.okt 2024 23,834 23,953 3,20% 5,17% 14,39%
ÍV Eignasafn IV - Erlend áhersla / Hlutabréf hámark 80% mán 21.okt 2024 15,762 15,841 3,55% 8,70% 27,02%

Skuldabréfasjóðir

Heiti sjóðs Dagsetning Kaup Sala 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa mán 21.okt 2024 480,397 482,811 1,96% 2,74% 8,22%
ÍV Erlent skuldabréfasafn mán 21.okt 2024 0,999 1,004 2,61% 6,86% 16,10%
ÍV Ríkisskuldabréfasjóður mán 21.okt 2024 4,875 4,900 2,06% 2,78% 8,04%
ÍV Skuldabréfasafn mán 21.okt 2024 16,201 16,283 1,40% 2,96% 5,97%
ÍV Sparisafn mán 21.okt 2024 18,540 18,633 1,84% 3,20% 7,67%

Hlutabréfasjóðir

Heiti sjóðs Dagsetning Kaup Sala 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Alþjóðlegur hlutabréfasjóður mán 21.okt 2024 672,439 679,231 4,84% 10,14% 29,70%
ÍV Erlent hlutabréfasafn mán 21.okt 2024 724,364 731,681 2,75% 11,80% 30,14%
ÍV Íslensk hlutabréf - Aðallisti hs. mán 21.okt 2024 37,652 38,032 7,78% 2,71% 12,09%
ÍV Stokkur mán 21.okt 2024 18,696 18,885 8,53% 2,46% 15,46%