Baldvin Ólafsson

Sérfræðingur í eignastýringu

Baldvin er sérfræðingur í eignastýringu og hóf störf hjá ÍV snemma árs 2025. 

 Hann hefur yfir 20 ára reynslu úr fjármála- og tryggingageiranum, þar sem hann hefur sinnt fjölbreyttum störfum á sviði viðskipta, ráðgjafar og stjórnunar.

 Baldvin starfaði hjá Sjóvá og VÍS frá 2006, lengst af á fyrirtækjasviði sem viðskiptastjóri. Þar öðlaðist hann víðtæka reynslu af ráðgjöf til fyrirtækja, viðskiptaþróun og stjórnun lykilviðskiptasambanda. Hann hefur jafnframt gegnt stjórnunarstörfum innan tryggingageirans, meðal annars sem útibússtjóri Sjóvá á Norðurlandi.

 Baldvin er með Executive MBA-gráðu í stjórnun frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi og BS-gráðu í International Business and Management frá Northwood University í Bandaríkjunum. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Senda póst