Alþjóðlegur hlutabréfasjóður

Íslensk verðbréf hf. bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum helstu sviðum verðbréfaviðskipta s.s. á sviði fjárvörslu og eignastýringar,

  • undirsida7

Alþjóðlegur hlutabréfasjóður

Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði og er starfræktur af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf.  Alþjóðlegur hlutabréfasjóður er sjóðasjóður sem fjárfestir í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum.

Markmið sjóðsins er að skila fjárfestum langtímaávöxtun og áhættudreifingu. Fjárfest er í alþjóðlegum hlutabréfasjóðum virtra sjóðastýringafyrirtækja.  Alþjóðlegur hlutabréfasjóður var starfræktur af Rekstrarfélagi SPRON hf. fram til 3. júní 2009.

 

Fjárfestingarstefna

Alþjóðlegur hlutabréfasjóður fjárfestir í erlendum verðbréfasjóðum og öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Sjóðurinn fjárfestir að meginstefnu til í heimssjóðum (Global Funds).

Eignaflokkur Fjárfestingarheimild
Erlendir verðbréfasjóðir og sjóðir um sameiginlega fjárfestingu. 0 til 100%

 

Fyrir hverja

Sjóðurinn hentar þeim sem kjósa að fjárfesta á alþjóðlegum mörkuðum og vilja dreifa áhættunni í stað þess að fjárfesta í einstöku erlendu hlutafélagi. Æskilegt er að hugsa fjárfestingu í sjóðnum til lengri tíma því hún felur í sér töluverða áhættu.

 

Gengisþróun og verðbreyting

Skattamál
Fjármagnstekjuskattur greiðist af ávöxtun sjóðsins
Eignaflokkur
Hlutabréf (erlend)
Umsýsluþóknun
1,5% á ári
Áskriftarmöguleiki
Þóknun við kaup
2,0%
Þóknun við sölu
0,0%
Uppgjörstími
Þrír virkir dagar
Gengisþróun
Hlaða niður í Excel
Sjóðsstjóri
Helga Björg Ingvadóttir
Stofnár
2005
Útboðslýsing
Útboðslýsing Alþjóðlega hlutabréfasjóðs
Útboðslýsing Alþjóðlega hlutabréfasjóðs - útdráttur
Áhætta
risk5
Velta skuldabréf 10.084.342.279 isk Velta hlutabréf 81.686.926 isk Viðskipti dagsins 10.166.029.205 isk Uppfært 22/02/2012 kl. 15:00

Svæði

Innskráning viðskiptavina