Sparisafn ÍV er verðbréfasjóður skv. lögum 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði og er starfræktur af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV hf. Sjóðurinn er traustur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta fjármuni með fjárfestingu í ríkistryggðum skuldabréfum í eitt ár eða lengur.
Fjárfestingarstefna
Fjárfest er í ríkistryggðum verðbréfum, þ.e. markaðsverðbréfum gefnum út af ríkissjóði og Íbúðalánasjóði, og innlánum fjármálafyrirtækja.
| Eignaflokkur | Fjárfestingarheimild |
| Ríkisvíxlar |
0 til 50% |
| Ríkisbréf |
30 til 90% |
| Spariskírteini, íbúðabréf, húsbréf og húsnæðisbéf |
0 til 90% |
| Innlán |
0 til 20% |
Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 1-5 ár og getur gengi sjóðsins sveiflast nokkuð við breytingar á ávöxtunarkröfu á markaði.
Fyrir hverja?
Þar sem gengi sjóðsins sveiflast í takt við breytingar á ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði er sjóðurinn einkum ætlaður fjárfestum sem hyggja á fjárfestingu til eins árs eða lengur.
Einnig hentar sjóðsdeildin fjárfestum sem vilja lágmarka skuldaraáhættu, þar sem eignir hennar eru ríkistryggðar.
Við áskrift er veittur 50% afsláttur af þóknun við kaup. Enginn þóknun er tekin við sölu.
