Uppfærsla verður framkvæmd á verðbréfavef Íslenskra verðbréfa eftir kl. 16:00 í dag

Ágæti viðskiptavinur,

Vegna uppfærslu á verðbréfavefnum hjá okkur í dag, fimmtudaginn 15.06.2023, verður ekki hægt að nota verðbréfavefinn til að eiga viðskipti eða skoða stöður eftir kl. 16:00 eða á meðan á uppfærslu stendur. Frekari upplýsingar veitir ÍV miðlun eða hægt er að senda póst á iv@iv.is.

Beðist er velvirðingar á þessari truflun.