Golfmót starfsmanna ÍV

Í gær var haldið árlegt golfmót starfsmanna ÍV þar sem keppa saman vanur/óvanur í texas scramble.  Skemmst er frá því að segja að sigurvegarar urðu Björn Gíslason og Ásgeir Ásgeirsson, í öðru sæti lentu Valdimar Pálsson og Sigurvin Sigurjónsson og í þriðja sæti urðu Arne Vagn Olsen og Þorvaldur Þorsteinsson.  Lítill munur var á liðunum og mörg skemmtileg tilþrif litu dagsins ljós.  Sigurvegurunum er að sjálfsögðu óskað til hamingju með sigurinn.