Nýr starfsmaður á bókhalds- og bakvinnslusviði

Kristín Sigurðardóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Íslenskum verðbréfum, en hún mun sinna sérverkefnum á bókhalds- og bakvinnslusviði hf. Kristín er fædd 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 1988, sveinsprófi í klæðskurði 1995 og öðlaðist meistararéttindi sem klæðskeri 1997.

Kristín útskrifaðist sem viðskiptafræðingur af fjármálasviði frá Háskólanum á Akureyri vorið 2007. Hún er gift Sigurði Aðils sölustjóra hjá Nýherja og eiga þau tvö börn.