Mæðrastyrksnefnd styrkt um hálfa milljón króna

Íslensk verðbréf afhentu í vikunni Mæðrastyrksnefnd á Akureyri hálfa milljón króna að gjöf og mun nefndin nýta fjármunina til þess að styðja skjólstæðinga sína nú fyrir jólin.Íslensk verðbréf afhentu í vikunni Mæðrastyrksnefnd á Akureyri hálfa milljón króna að gjöf og mun nefndin nýta fjármunina til þess að styðja skjólstæðinga sína nú fyrir jólin.


Þetta er fjórða árið í röð sem Íslensk verðbréf færa nefndinni styrk, þar af hefur styrkurinn numið hálfri milljón króna undanfarin þrjú ár.  Styrkurinn kemur í stað jólakorta sem áður voru send viðskiptavinum. 

Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir að ákveðið hafi verið að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í hennar mikilvæga verkefni að styðja fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standi höllum fæti.

Mæðrastyrksnefndin á Akureyri ásamt Arne Vagn og Sævari Helgasyni frá Íslenskum verðbréfum.

Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa þegar lagt nefndinni lið og hvetja Íslensk verðbréf alla sem eru aflögufærir til að gera slíkt hið sama.


Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist vera afar þakklát fyrir þessa  gjöf  Íslenskra verðbréfa sem mun nýtast sérstaklega vel nú um jólin.


Í þau rúm 20 ár sem Jóna Berta hefur komið að starfi Mæðrastyrksnefndar á Akureyri hefur aldrei áður verið jafn mikil þörf fyrir aðstoð og síðustu tvö ár.





Nefndinni hefur borist svipaður fjöldi beiðna og í fyrra og er ráðgert að styðja upp undir 500 fjölskyldur nú um jólin. Skjólstæðingar nefndarinnar eru á öllu Eyjafjarðarsvæðinu auk Siglufjarðar.


Um Mæðrastyrksnefndina á Akureyri

Nefndin var stofnuð árið 1939 og hefur í gegnum tíðina veitt einstæðum mæðrum, einstæðum feðrum og efnalitlum fjölskyldum aðstoð með margvíslegum hætti.  Um þessi jól fá um 500 fjölskyldur aðstoð og hafa Íslensk verðbréf ákveðið að leggja góðu málefni lið og styrkja Mæðrastyrksnefndina um fyrrgreinda upphæð.


Um Íslensk verðbréf

Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem hófu starfsemi árið 1987. Starfsmenn eru 24 talsins, höfuðstöðvar þess eru á Akureyri en jafnframt starfrækir félagið skrifstofu að Sigtúni 42 í Reykjavík. Eignir í stýringu nema um 110 milljörðum króna.