Starf verðbréfamiðlara auglýst

Vegna vaxandi umsvifa auglýsa Íslensk verðbréf nú eftir umsóknum um starf verðbréfamiðlara hjá félaginu.Vegna vaxandi umsvifa auglýsa Íslensk verðbréf nú eftir umsóknum um starf verðbréfamiðlara hjá félaginu.

Leitað er að talnaglöggum einstaklingi sem er nákvæmur í vinnubrögðum.  Viðkomandi þarf einnig að vera áhugasamur um fjármálaþjónustu og tilbúinn að veita óaðfinnanlega þjónustu á því sviði.

Um er að ræða sumarstarf og/eða framtíðarstarf og skal umsóknum skilað til Ásgeir Ásgeirssonar, forstöðumanns verðbréfamiðlunar Íslenskra verðbréfa, í síðasta lagi 3. maí.  Ásgeir veitir jafnframt frekari upplýsingar um starfið ef þess er óskað.

Hér er að finna auglýsingu um starfið (pdf).