Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa

Í dag var undirritaður samningur milli Íslenskra verðbréfa og UFA þess efnis, að Íslensk verðbréf verði aðalstyrktaraðilar Akureyrarhlaups UFA.

Íslensk verðbréf og UFA hafa undirritað samkomulag þess efnis að Íslensk verðbréf verði aðalstyrktaraðilar Akureyrarhlaups UFA.  Hlaupið mun því heita Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa árið 2011.

Akureyrarhlaup_IV_2011

 

UFA hefur haldið Akureyrarhlaup frá því sumarið 1992 og hlaupið í ár er því það 20. í röðinni.   Að þessu sinni fer hlaupið fram á fimmtudagskvöldið 30. júní kl. 20:00 um eina mestu ferðahelgi ársins á Akureyri, þegar hundruð manna leggja leið sína í bæinn til að taka þátt í fótboltamótum Þórs og KA og vonumst við til að úr verði vel heppnuð íþróttahelgi á Akureyri.

Hlaupið hefst við Átak og er hlaupið um eyrina og suður Drottningarbraut og Eyjafjarðarbraut, hlaupaleiðin er því marflöt og vænleg til góðra afreka.  Keppt er í tveimur vegalengdum 10 km hlaupi og hálfmaraþoni.

Heimasíða Akureyrarhlaups Íslenskra verðbréfa er akureyrarhlaup.is.