Alþjóðlega skuldabréfasjóði ÍV slitið

Stjórn Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV hefur tekið þá ákvörðun að slíta Alþjóðlega skuldabréfasjóði ÍV þar sem ekki er lengur unnt að uppfylla fjárfestingarstefnu hans.

Eignarhlutur eigenda er til útgreiðslu nú þegar - þeir sem eru í eignastýringu hjá ÍV fá viðkomandi upphæð sjálfkrafa lagða inn á eignastýringarsafn sitt.

Nánari upplýsingar fást hjá Íslenskum verðbréfum hf. í síma 460-4700.  Einnig er hægt að senda fyrirspurn á iv@iv.is