Byr annast viðbótarlífeyrissparnað SPRON og nb.is

Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is. Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is.


Sparnaðurinn færist sjálfkrafa til Byrs, eigendum að kostnaðarlausu, hálfum mánuði eftir að þeim berst kynningarbréf þess efnis.  Það verður sent út næstu daga. 

 

Samkvæmt samningi við slitastjórn SPRON og nb.is mun Byr annast ávöxtun á verðtryggðum sparnaði ásamt þjónustu við viðskiptavini en Íslensk verðbréf munu sjá um stýringu á verðbréfatengdum eignum.  Slitastjórnin gekk til samninga við Byr og ÍV að undangengnu útboði.

 

Eins og áður sagði mun viðbótarlífeyrissparnaður SPRON og nb.is færast sjálfkrafa til Byrs tveimur vikum eftir að viðskiptavinum berst kynningarbréf þess efnis nema þeir óski annars. Viðbótarlífeyrissparnaðurinn færist til Byrs, sjóðsfélögum að kostnaðarlausu.  

 

Eigendur viðbótarlífeyrissparnaðar SPRON og nb.is geta þeir nú fengið alla þjónustu vegna sparnaðar síns í heimabanka Byrs. Þeir sem ekki hafa haft aðgang geta nálgast notandanafn og lykilorð í heimabanka undir rafrænum skjölum.  Þá veita þjónustufulltrúar útibúa sparisjóðsins allar frekari upplýsingar.