BYR framlengir tilboð til áramóta

Nokkuð hefur borið á því að einstaklingar í Peningamarkaðssjóði ÍV sem fengið hafa tilboð BYRs í hendur hafi óskað eftir lengri fresti til að meta tilboðið og/eða skila inn framsali.

Nokkuð hefur borið á því að einstaklingar í Peningamarkaðssjóði ÍV sem fengið hafa tilboð BYRs í hendur hafi óskað eftir lengri fresti til að meta tilboðið og/eða skila inn framsali.

 

Til að koma til móts við þessa aðila hefur verið ákveðið að framlengja tímafrestinn til áramóta, en fresturinn var áður til 22. desember. 

 

Lengri frestur kemur einnig til móts við þá einstaklinga sem eru erlendis eða hafa einhverra hluta vegna ekki haft tök á að skoða póstinn sinn.