Frestun á viðskiptum í sjóðum sem eiga skuldabréf útgefin af ÍLS

Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. tilkynnir hér með ákvörðun um að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini þeirra sjóða sem eiga skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði. 

Ákvörðun þessi er tekin í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið hefur stöðvað tímabundið viðskipti með skuldbréf útgefin af Íbúðalánasjóði.

Sjóðirnir sem um ræðir eru:

  • Ríkisskuldabréfasjóður ÍV
  • Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa
  • Eignastýringarsafn ÍV – I
  • Eignastýringarsafn ÍV – II