Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa árið 2010

Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa árið 2010 nam 170 m.kr.  Niðurstaðan er í samræmi við áætlanir félagsins og í takt við afkomu þess árið 2009.Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa árið 2010 nam 170 m.kr.  Niðurstaðan er í samræmi við áætlanir félagsins og í takt við afkomu þess árið 2009.

Eiginfjárhlutfall félagsins (CAD) var í árslok 26,7% en hlutfallið má ekki vera lægra en 8% skv. 84. grein laga um fjármálafyrirtæki.

Vöxtur var á öllum sviðum eignastýringar, hvort sem horft er til einstaklinga eða fagfjárfesta. Alls stýrði félagið 116 milljörðum króna fyrir viðskiptavini sína í árslok 2010 samanborið við 95 milljarða króna í árslok 2009.

Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, er að vonum ánægður með árangurinn. „Árangurinn er í takt við áætlanir og ljóst að sérstaða félagsins hefur aldrei verið eins mikilvæg og í kjölfar hrunsins. Hún er jafnframt lykillinn að góðum árangri hvort sem horft er á árangur í eignastýringu eða afkomu félagsins.“

Sérstaðan felst í því að sinna einungis eignastýringu og miðlun, ólíkt samkeppnisaðilum sem margir hverjir stunda eigin fjárfestingar og fyrirtækjaráðgjöf samhliða eignastýringu.


Framúrskarandi fyrirtæki – efst íslenskra fjármálafyrirtækja
Íslensk verðbréf eru í efsta sæti fjármálafyrirtækja í ítarlegri greiningu sem Creditinfo vann meðal 32.000 fyrirtækja á Íslandi.

Fyrst og fremst var horft til bestu einkunna í styrk-og stöðugleikamati og eru Íslensk verðbréf í 27. sæti af öllum þeim fyrirtækjum sem skoðuð voru. Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á rekstrarhagnað og jákvæða ársniðurstöðu.