Líf og fjör á öskudegi

Að venju var líf og fjör á öskudeginum í dag.  Fjölmargir krakkar lögðu leið sína til Íslenskra verðbréfa og sungu fyrir starfsmenn. 

Að venju var líf og fjör á öskudeginum í dag.  Fjölmargir krakkar lögðu leið sína til Íslenskra verðbréfa og sungu fyrir starfsmenn. 

Meðal þeirra sem komu í heimsókn voru Elvis Presley, nornir, síamstvíburar og ýmis dýr.  Að launum fengu þau nammipoka og mandarínu og voru allir aðilar sáttir með sitt.  Teknar voru myndir af þeim sem komu við og má skoða myndirnar í myndasafni hér.

Við þökkum kærlega fyrir heimsóknirnar og erum strax farin að hlakka til næsta öskudags.