LSS kaupir 15% hlut í Íslenskum verðbréfum

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur keypt 15% hlut í Íslenskum verðbréfum á Akureyri.

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur keypt 15% hlut í Íslenskum verðbréfum á Akureyri.

Þar með eiga þrír lífeyrissjóðir tæplega 45% hlutafjár í félaginu, en hinir sjóðirnir eru Stapi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður Vestfirðinga. Íslensk verðbréf eru meðal elstu starfandi fjármálafyrirtækja á Íslandi en félagið var stofnað árið 1987.

Rekstur Íslenskra verðbréfa er traustur, þrátt fyrir þau áföll sem fjármálalífið og íslenskt samfélag hafa orðið fyrir á síðustu mánuðum. Áætlanir gera ráð fyrir hagnaði árið 2009 og fyrstu mánuðir þessa árs eru í samræmi við það.

Íslensk verðbréf hafa sérhæft sig í eignastýringu fyrir fagfjárfesta, fyrirtæki og einstaklinga. Þrátt fyrir þær miklu lækkanir sem hafa orðið á mörkuðum hafa eignir í stýringu hjá fyrirtækinu ekki minnkað, enda hafa núverandi viðskiptavinir aukið eignir í stýringu auk þess sem nýir viðskiptavinir hafa bæst við.

„Íslensk verðbréf eru traust og vel rekið fyrirtæki og hefur sýnt góða arðsemi í rekstri þrátt fyrir þann mikla samdrátt sem hefur orðið á fjármálamörkuðum. Við þekkjum fyrirtækið ágætlega eftir farsæl samskipti við það undanfarin ár.

Það veitir persónulega þjónustu og boðleiðir eru stuttar. Íslensk verðbréf eru ekki í stöðutöku fyrir eigin reikning og það er að okkar mati mikilvægt.  Og við teljum einnig mikilvægt að fyrirtækið greiðir allan hagnað út, sem hefur verið vel ásættanlegur og við teljum að svo verði áfram,“ segir Jón G. Kristjánsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga.

Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir það mikla og góða traustsyfirlýsingu fyrir ÍV að fá Lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga inn sem hluthafa í félaginu. „Ég lít á það sem mikinn styrk fyrir okkur að þrír lífeyrissjóðir eigi hlut í félaginu. Við höfum unnið mikið  fyrir fagfjárfesta almennt og aðild þessara þriggja sjóða að félaginu er að mínu mati til marks um ánægju með okkar stefnu og þjónustu,“ segir Sævar.