Mæðrastyrksnefnd styrkt um hálfa milljón króna

Íslensk verðbréf hf. á Akureyri afhentu í dag Mæðrastyrksnefnd á Akureyri hálfa milljón króna að að gjöf og mun nefndin nýta fjármunina til þess að styðja skjólstæðinga sína nú fyrir jólin.

Íslensk verðbréf hf. á Akureyri afhentu í dag Mæðrastyrksnefnd á Akureyri hálfa milljón króna að að gjöf og mun nefndin nýta fjármunina til þess að styðja skjólstæðinga sína nú fyrir jólin.

Þetta er annað árið í röð sem Íslensk verðbréf færa nefndinni styrk, en styrkurinn kemur í stað jólakorta sem áður voru send viðskiptavinum. 



Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir að ákveðið að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í hennar mikilvæga verkefni að styðja fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standi höllum fæti.


Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa þegar lagt nefndinni lið og hvetja Íslensk verðbréf alla sem eru aflögufærir til að gera slíkt hið sama.



Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist vera afar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf  Íslenskra verðbréfa og að þessir fjármunir muni koma í góðar þarfir.


Í þau rúm 20 ár sem Jóna Berta hefur komið að starfi Mæðrastyrksnefndar á Akureyri hefur aldrei áður verið jafn mikil þörf fyrir aðstoð. Nefndinni hefur borist ívið fleiri beiðnir en á síðasta ári þegar um 400 fjölskyldur voru styrktar af nefndinni.  Nokkuð ber á ungu fjölskyldufólki sem misst hefur vinnuna.


Til samanburðar fékk Mæðrastyrksnefnd um 280 beiðnir um aðstoð fyrir jólin 2007 og 300 beiðnir fyrir jólin 2006.  Skjólstæðingar nefndarinnar eru á öllu Eyjafjarðarsvæðinu auk Siglufjarðar.