Mæðrastyrksnefnd styrkt um kr. 150 þús.

Íslensk verðbréf hf. hefur ákveðið að styrkja Mæðrastyrksnefndina á Akureyri um 150 þús krónur. 

Nefndin var stofnuð árið 1939 og hefur í gegnum tíðina veitt einstæðum mæðrum, einstæðum feðrum og efnalitlum fjölskyldum aðstoð með margvíslegum hætti.  Um þessi jól fá um 300 fjölskyldur aðstoð og hafa Íslensk verðbréf ákveðið að leggja góðu málefni lið og styrkja Mæðrastyrksnefndina um fyrrgreinda upphæð. 

Fyrir þá sem vilja koma framlögum til nefndarinnar skal upplýst að hún er til húsa í Íþróttahöllinni við Þórunnarstræti og símanúmer hennar er 462 4617.