Öskudagsheimsóknir

Að vanda var mikið um heimsóknir til Íslenskra verðbréfa hf. á öskudeginum í gær.  Okkur taldist til að um 250 krakkar hefðu lagt leið sína til okkar í alls konar múnderingum.  M.a. mættu tveir leikskólar auk barna starfsmanna svo fátt eitt sé nefnt.

Hér er að finna nokkrar myndir frá gærdeginum.  Við þökkum öllum fyrir sem lögðu leið sína til okkar og vonumst til að sjá þau aftur á næsta ári eða fyrr.