Peningamarkaðssjóður ÍV - upplýsingar

Hér að neðan gefur að líta svör við helstu spurningum um Peningamarkaðssjóð ÍV og stöðu hans.  Rétt er að taka fram að erfitt er að spá nákvæmlega fyrir um afskriftarhlutfall og greiðslur úr sjóðnum þar sem óvissan er mikil. 

Starfsfólk Íslenskra verðbréfa hf. veitir nánari upplýsingar í síma 460 4700 - einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið iv@iv.is með fyrirspurnir ef einhverjar eru.

 

  • Hver er skipting á milli eignaflokka í Peningamarkaðssjóði ÍV? 18% eru skuldabréf útgefin af fjármálafyrirtækjum og  82% eru skuldabréf útgefin af öðrum fyrirtækjum.

 

  •  Hver er hugsanleg afskrift?  Búast má við að afskrifa þurfi sumar eignir að fullu, en aðrar sem þegar er búið að afskrifa gætu haft virði í framtíðinni.  Með öðrum orðum er mjög erfitt að meta afskriftarhlutfallið undir núverandi kringumstæðum.  Einnig á eftir að koma í ljós hvort og þá hvernig íslenska ríkisstjórnin kemur að málefnum peningamarkaðssjóða almennt.

 

  • Munu eignir sjóðsins bera vexti þar til eignir verða greiddar út? Eignir sjóðsins bera allar vexti og hluti þeirra er einnig verðtryggður.
 
  • Hvenær/hvernig  verður greitt úr sjóðnum?  Um leið og FME veitir heimild til útgreiðslu úr skuldabréfasjóðum almennt mun laust fé verða greitt til eigenda í hlutfalli við þeirra eign.  Í framhaldinu verður greitt mánaðarlega til eigenda eftir því sem afborganir af eignum sjóðsins innheimtast.
 
  • Er hugsanlegt að einn viðskiptavinur geti fengið eign sína greidda út úr sjóðnum meðan aðrir þurfa að bíða?  Allir viðskiptavinir sitja við sama borð, þ.e. enginn fær greitt meira hlutfallslega en aðrir.  Rétt er að taka fram að  Íslensk verðbréf hf. , sem einn eigenda hlutdeildarskírteina í sjóðnum, lýtur sömu skilyrðum.
 
  • Hvað tekur langan tíma að fá allan pening úr sjóðunum?  Fyrir árslok 2009 má búast við að amk 90% af þeim eignum sem skila sér hafi verið greidd til þeirra sem eiga hlut í sjóðnum.