Staða eignasafna komin í lag

Búið er að laga ranga stöðu eignasafna sbr. frétt frá 14. apríl s.l.  Jafnframt hefur verið bætt við dálki sem sýnir hlutfallsskiptingu eigna viðskiptavina þ.a. auðveldara sé að átta sig á því hvernig safnið er fjárfest.

Vakni spurningar eða athugasemdir vegna þessa er viðskiptavinum bent á að hafa samband við skiptiborð í síma 460-4700.