Íslensk verðbréf er framúrskarandi fyrirtæki

Íslensk verðbréf er eitt af framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2013 skv. greiningu Creditinfo á íslenskum fyrirtækjum. Eingöngu koma til greina þau fyrirtæki sem staðist hafa styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum. Skilyrðin eru eftirfarandi:

  • Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2010 til 2012
  • Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
  • Að sýna rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
  • Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
  • Að eignir séu 80 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að eigið fj árhlutfall sé 20% eða meira, rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
  • Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

Íslensk verðbréf hf er á meðal 1,5% íslenskra fyrirtækja sem uppfylltu þessi skilyrði á árinu 2013 og er í 10. sæti meðal meðalstórra fyrirtækja.