ÍV Kredit

Síðast uppfært: 15.08.2017

Fyrir hvern er sjóðurinn?

ÍV Kredit hentar einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum sem þola nokkrar sveiflur í ávöxtun. Sjóðurinn hentar fjárfestum sem sækjast eftir virkri stýringu á skuldabréfum sem ekki njóta ábyrgðar íslenska ríkisins, eru að fjárfesta til langs tíma og eru tilbúnir að taka áhættu á sveiflum í ávöxtun.

Markmið og fjárfestingarstefna

ÍV Kredit fjárfestir í innlendum skuldabréfum og víxlum (skráðum og óskráðum) og innlánum fjármálafyrirtækja. Sjóðnum er heimilt að festa það fé sem hann nýtir til fjárfestinga í öðrum sjóðum að hluta eða öllu leyti í sjóðum sem reknir eru af ÍV sjóðum hf. Markmið sjóðsins er að ávaxta fjármuni hlutdeildarskírteinishafa á virkan hátt með því að nýta þau tækifæri sem rekstaraðili telur best á hverjum tíma. Þrír fjárfestingaflokkar mynda grunninn að stýringu sjóðsins þ.e. innlend skuldabréf og víxlar, innlán fjármálafyrirtækja og hlutdeildarskírteini fjárfestingasjóða (sem skilgreindir eru sem lausafjársjóðir) og hlutdeildarskírteini fagfjárfestingasjóða. Í samræmi við skoðun ÍV sjóða, á hverjum tíma, fjárfestir sjóðurinn í þeim eignarflokki sem líklegur er til þess að gefa góða ávöxtun að teknu tilliti til áhættu. Markmið sjóðsins er að ná fram betri langtímaávöxtun með fjárfestingu í slíkum verðbréfum en ríkistryggð verðbréf veita.

Verðbreyting (upphafsgildi = 100)

Eignasamsetning

Stærstu eignir

Fjárfestingarstefna

Stefna 

Eign

Innlend skráð skuldabréf og víxlar, önnur en ríkistryggð 35-100% 76%
Fjárfestingarsjóðir sem skilgreindir eru sem lausafjársjóðir 0-20% 17%
Innlán fjármálafyrirtækja 0-20% 0%
Hlutdeildarskírteini fagfjárfestasjóða sem fjárfesta í skuldabréfum, víxlum eða skuldabréfatengdum verðbréfum 0-20% 0%
Óskráð innlend veðskuldabréf 0-30% 0%
Óskráð innlend skuldabréf og víxlar 0-30% 0%
Reiðufé   6%

 

 

Stærstu útgefendur

Verðbreyting tímabila Frá áramótum 3 mán 6 mán 12 mán
ÍV Kredit 37,0% 37,0% 36,5% 37,0%
Verðbreyting ára
ÍV Kredit

Grunnupplýsingar

Stærð (m.kr.) 1,0
Sjóðstjóri Jóhann Steinar Jóhannsson
Stofnár 2016
Umsýsluþóknun á ári 120%
Árangursþóknun Á ekki við
Árangursviðmið Á ekki við
Rekstraraðili ÍV sjóðir hf.
Vörsluaðili Íslensk verðbréf hf.

Viðskipti

Lágmarkskaup 3.000
Þóknun við kaup 0%
Þóknun við sölu 0%
Afgreiðslutími 10:00 til 14:00
Uppgjörstími 10 viðskiptadagar (T+10)
Áskriftarmöguleikar

Tölfræðilegar upplýsingar

Gengi sjóðs 15.08.2017 13.7008
Meðallíftími (ár) 4,02
Verðtr.hlutfall 57,20%

Hvernig fjárfesti ég í sjóðnum?

Hægt er að fjárfesta í ÍV Kredit með því að hafa samband við ráðgjafa Íslenskra verðbréfa í síma 460 4700. Einnig má fjárfesta í sjóðnum á heimasíðu Íslenskra verðbréfa www.iv.is. Gerast má áskrifandi að sjóðnum með því að hafa samband við Íslensk verðbréf, þá er annaðhvort skuldfært af kreditkorti eða millifært af bankareikningi mánaðarlega umsamin upphæð og því bætt við eign viðskiptavinar í ÍV Kredit.

Skattlagning

Hagnaður af innlausn eignarhlutdeildar sjóðsins er skattskyldur á Íslandi. Skattskyldur hagnaðar ákvarðast samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt nr. 90/2003 og myndar eignarhlutdeild í sjóðnum stofn til greiðslu eignarskatts. Vörslufyrirtæki sjóðsins, Íslensk verðbréf hf., sér um að standa skil á fjármagnstekjuskatti samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, en hann leggst á þegar eignarhlutdeild í sjóðnum er seld með hagnaði eða þegar tekjur eru greiddar af eignarhlutdeild. Söluhagnaður ber 20% fjármagnstekjuskatt. 

Fyrirvari

ÍV Kredit er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði og hefur því rýmri heimildir til fjárfestinga en verðbréfasjóðir. ÍV sjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Íslenskra verðbréfa, www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.