Ný heimasíða Íslenskra verðbréfa

Íslensk verðbréf hleyptu í dag af stokkunum nýrri heimasíðu.

Íslensk verðbréf hleyptu í dag af stokkunum nýrri heimasíðu.  Nýja heimasíðan er mun aðgengilegri en sú eldri og meðal helstu breytinga er stórbætt upplýsingagjöf til viðskiptavina í gegnum "innskráning viðskiptavina".

Nýja síðan er hönnuð af Plánetunni og forrituð af Stefnu, líkt og fyrri síða.  Gísli Dúa ljósmyndari á heiðurinn af flestum myndum heimasíðunnar.

 

Nýr og betri vefaðgangur

Viðskiptavinir eignastýringar,  sem hafa sótt um vefaðgang að eignasafni sínu, geta nú sótt yfirlit fyrir hvaða tímabil sem er og vistað sem pdf eða flutt gögn yfirlitsins yfir í Excel til nánari úrvinnslu.